Vegna mikilla anna í vinnu og daglegu lífi hefur sá frítími sem þarf til að sinna Tréleik minnkað mjög mikið. Því hef ég ákveðið að loka fyrir pantanir um óákveðinn tíma.
Biðst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda en vonandi opnar aftur fyrir pantanir fyrr en seinna.
-Andri Tréleikur, apríl 2022.
Harðviðarnöfn
kr.2.100 – kr.8.400
Handgerðir stafir úr gegnheilli eik.
Hægt er að velja um tvær gerðir:
1. Hefðbundnir stafir með áföstum botni
2. Samtengt „graffiti“ letur
Ef panta á fleiri en eitt nafn, setjið þá hvert nafn fyrir sig í körfu.
Það er hægt að fá fornafn og millinafn fast saman í hefðbundna letrinu (sjá Thelma Ýr hér til hliðar).
Nöfnin sjálf eru svo skrifuð í athugasemdadálk í lok pöntunarferils.
Lýsing
Handgerðir stafir í hástafa letri, 4-5 cm á hæð, úr gegnheilli eik.
Hægt er að velja um tvær gerðir:
1. Hefðbundnir stafir með áföstum botni
2. Samtengt „graffiti“ letur
Fallegt hilluskraut í barnaherbergið eða á skrifborðið í vinnunni.
Graffiti stafirnir hafa verið vinsælir í afmælis- og jólagjafir fyrir börn og unglinga.
Hver stafur kostar 700 kr. Lágmarkspöntun eru þrír stafir.
Frekari upplýsingar
Gerð | Hefðbundið letur, með botni., Graffiti letur, samtengt. |
---|---|
Fjöldi | 3 stafir – 2.100 kr., 4 stafir – 2.800 kr., 5 stafir – 3.500 kr., 6 stafir – 4.200 kr., 7 stafir – 4.900 kr., 8 stafir – 5.600 kr., 9 stafir – 6.300 kr., 10 stafir – 7.000 kr., 11 stafir – 7.700 kr., 12 stafir – 8.400 kr. |